Bíó og sjónvarp

Það getur verið helvíti að búa með manneskju með geðræn vandamál

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
„Það getur verið helvíti að búa með manneskju með geðræn vandamál,“ segir Bente Trier, eiginkona danska leikstjórans Lars Von Triers, í viðtali sem birtist á bt.dk.

Lars og Bente kynntust þegar Bente var kennari dóttur leikstjórans og þegar hann bað hennar höfðu þau ekki einu sinni sofið í sama rúmi. Hann gaf henni tvo sólarhringa til að hugsa málið, hún sagði já og þau hafa verið gift í nítján ár. En lífið með Lars hefur ekki alltaf verið auðvelt.

„Af og til óskar Lars að hann geti bara ýtt á hnapp og dáið þar og nú. Það er rosalega erfitt að vera svona hræddur,“ segir Bente. Hún segir hann alltaf hugsa vel um börnin sín fjögur þrátt fyrir veikindin.

„Hann hefur alltaf passað vel uppá þau. Hann er með öryggi á heilanum og passar að hurðar séu læstar og spennir þau í bílbelti.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×