Bíó og sjónvarp

Tónlist eftir stórstjörnur í Girls

Tónlistarstjóri þáttaraðarinnar Girls lét frumsemja tónlist fyrir þriðju og jafnframt nýjustu þáttaröðina.

Manish Raval, sem fer með tónlistarstjórn, sagði í viðtali við radio.com:

„Við fengum Miguel til að semja lag fyrir okkur. Við erum með nýtt lag eftir Jenny Lewis og annað glænýtt lag eftir Lily Allen og annað eftir Christinu Perri.“

„Svo komust við yfir glænýtt lag eftir Beck, sem hann kláraði nýverið fyrir nýju plötuna sína og lét okkur fá fyrir þættina áður en hann gefur út plötuna,“ hélt Raval áfram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×