Bíó og sjónvarp

Leikur mauramanninn

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Ant-man er frumsýnd næsta sumar.
Ant-man er frumsýnd næsta sumar.
Marvel hefur tilkynnt að leikarinn Paul Rudd muni leika aðalhlutverkið í kvikmyndinni Ant-man, Mauramanninum, sem sýnd verður sumarið 2015. Edgar Wright skrifaði handritið með Joe Cornish.

„Þegar Edgar Wright stakk upp á Paul Rudd var okkur létt því fyrsta skrefið í að búa til Marvel Studios-kvikmynd er að finna réttu stjörnuna. Við vissum snemma að við höfðum fundið réttu manneskjuna í Paul. Hann ekki bara samþykkti að taka þátt heldur var áhugasamari en flestir leikarar sem við höfðum hitt. Við gætum ekki verið spenntar fyrir því að sýna áhorfendum hvernig hann blæs lífi í Ant-man,“ segir Kevin Feige hjá Marvel.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×