Bíó og sjónvarp

Íslenskri kvikmyndagerð gerð skil á Gautaborgarhátíðinni

Baltasar Kormákur hlýtur fyrstu heiðursverðlaun hátíðarinnar.
Baltasar Kormákur hlýtur fyrstu heiðursverðlaun hátíðarinnar. AFP/NordicPhotos
„Það skal ósagt látið hvort efnahagserfiðleikar Íslands hafi orðið til þess að sköpunarkraftur kvikmyndagerðarfólks á Íslandi hefur blómstrað, en staðreyndin er sú að í ár hafa margar vel gerðar, frumlegar og listrænar myndir komið þaðan. Myndirnar búa yfir sérstökum, íslenskum einkennum sem sett eru fram á ferskan og persónulegan hátt,“ segir í yfirlýsingu frá Gautaborgarhátíðinni, sem er stærsta kvikmyndahátíð Norðurlanda.

Hátíðin í ár kemur til með að gefa íslenskri kvikmyndagerð sérstakan gaum, en kvikmyndirnar Hross í oss, í leikstjórn Benedikts Erlingssonar, og Málmhaus, í leikstjórn Ragnars Bragasonar, keppa um aðalverðlaun hátíðarinnar.

Þá hlýtur Baltasar Kormákur sérstök heiðursverðlaun hátíðarinnar.

Gautaborgarhátíðin er haldin snemma á næsta ári, þann 24. janúar til 3. febrúar, og á dagskránni er meðal annars sérstök yfirlitssýning frá Íslandi, þar sem nokkrar íslenskar kvikmyndir síðastliðinna tuttugu ára verða sýndar, meðal annars 101 Reykjavík eftir Baltasar Kormák, Bíódagar eftir Friðrik Þór Friðriksson og Sveitabrúðkaup eftir Valdísi Óskarsdóttur. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×