Bíó og sjónvarp

XL heillar Evrópubúa

Marteinn verður á ferðalagi næstu átta daga.
Marteinn verður á ferðalagi næstu átta daga. Fréttablaðið/Stefán
„Ég er að fara á þrjár hátíðir í röð. Ég byrja á hátíð í Vilnius í Litháen á hátíð fyrir norrænar myndir. Því næst fer ég á kvikmyndhátíðina í Cork á Írlandi og enda á hátíð í Segovia á Spáni,“ segir Marteinn Þórsson, leikstjóri kvikmyndarinnar XL. Myndin hefur farið víða og meðal annars verið sýnd á kvikmyndahátíðum í Kænugarði, Björgvin og Calgary uppá síðkastið.

Marteinn skrifaði einnig handrit myndarinnar ásamt Guðmundi Óskarssyni en aðalhlutverk voru í höndum Ólafs Darra Ólafssonar og Maríu Birtu. Marteinn flaug til Vilnius snemma í morgun en gerir sér ekki miklar vonir um verðlaun.

XL fer vel í útlendinga.
„Það eru næg verðlaun fyrir mig að komast á þessar hátíðir. Það heldur lífi í myndinni. Ég læt Benedikt Erlingsson um að vinna stærstu verðlaunin. Við erum búin að gera samning við sölufyrirtækið Cinema Vault sem ætlar að selja myndina og hún er nú þegar komin í dreifingu í Bandaríkjunum. Hún er búin að gera það ágætt þessi litla mynd,“ segir Marteinn. Hann verður á faraldsfæti í átta daga og ferðalögin taka á. Hann er því með góða hugmynd um hver ætti að vera andlit íslenskra kvikmynda á erlendri grundu.

„Okkur er boðið á þessar hátíðir af erlendum aðilum til að kynna menningu og þjóð. Mér finnst að Vigdís Hauksdóttir ætti að vera almannatengill kvikmyndagerðarmanna á Íslandi.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×