Skoðun

ÖBÍ er mikilvægt afl

Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Öryrkjabandalag Íslands er mikilvægt afl í samfélaginu. Hlutverk þess sem regnhlífarsamtaka er að vera frumkvöðull og málsvari í málefnum fatlaðra, setja kúrsinn og vinna þétt með stjórnsýslunni til að tryggja hlut þeirra tuttugu og sjö þúsund einstaklinga sem standa að aðildarfélögum ÖBÍ. Um leið er bandalagið nauðsynlegur bakhjarl einstakra aðildarfélaga, smárra sem stórra, og vinnur með þeim að einstökum málefnum.

Málefni öryrkja snerta enn fremur alla þjóðina. Það er allra hagur að einstaklingi sem vegna fötlunar þarf aðstoð á einn eða annan máta sé gert kleift að taka þátt í samfélaginu og skila sínu með stolti sem góður og gegn þjóðfélagsþegn. Annað brýtur gegn grundvallarmannréttindum og kostar samfélagið mun meira, hvort sem reiknað er í krónum eða með tilliti til samfélagslegra gilda.

Um þessar mundir er verið að vinna úr gögnum viðhorfskönnunar sem ÖBÍ lét gera um sambandið. Tvennt stendur upp úr við fyrstu skoðun. Annars vegar sú neikvæða ímynd ÖBÍ sem birtist í samtölum við nokkra af okkar helstu tengiliðum innan stjórnsýslunnar. Þar kemur skýrt fram að viðmælendur vilja vinna náið með ÖBÍ en upplifa þess í stað fálæti og neikvætt viðmót.

Hins vegar slær mig hversu litla samleið yngri félagsmenn telja sig eiga með bandalaginu. Haldi sú þróun áfram mun ÖBÍ einfaldlega veslast upp og deyja drottni sínum, fyrr en nokkurn grunar. Þessari þróun þarf að snúa við og það snarlega. Svo skýr skilaboð koma sjaldnast til af engu og forsagan hlýtur að teygja sig langt aftur.

Yfirstjórn ÖBÍ og aðildarfélög þurfa að rýna djúpt í eigin rann af fullkominni einlægni. Hafa þor til að taka á erfiðum málum og leita lausna sem efla samtökin inn á við. Bandalagið þarf jafnframt að taka upp breytt vinnubrögð gagnvart hinu opinbera sem tryggja aðkomu þess að málefnum fatlaðra. Einungis lausnamiðuð vinnubrögð og samvinna geta tryggt að ekkert sé ákvarðað um okkar málefni án okkar aðkomu. Um leið fær ÖBÍ gullið tækifæri til að auka skilning almennings á málefnum bandalagsins og efla jafnframt sjálfsmynd skjólstæðinga sinna, ungra sem aldinna.

Til þess að svo verði þarf öfluga og þróttmikla forystusveit sem getur unnið samhent að verkefninu. Skipta þarf út karlinum í brúnni og beita stíft án þess að skútan brotni.

Með samhentu átaki getum við á skömmum tíma gert ÖBÍ sjóklárt og sett kúrsinn til betra samfélags með þátttöku, jafnræði og ábyrgð að leiðarljósi.




Skoðun

Skoðun

Þorpið

Alina Vilhjálmsdóttir skrifar

Sjá meira


×