Bíó og sjónvarp

Flóknar tæknibrellur í Noah

Russell Crowe fer með aðalhlutverkið í stórmyndinni Noah.
Russell Crowe fer með aðalhlutverkið í stórmyndinni Noah.
Darren Aronofsky, leikstjóri stórmyndarinnar Noah sem var að hluta til tekin upp á Íslandi, segir að sumar tæknibrellurnar sem fyrirtækið Industrial Light & Magic notaði í myndinni hafi verið þær flóknustu í sögu þess.

Dýr skipa stóran sess í myndinni og voru þau öll tölvugerð. Mikill tími fór hjá fyrirtækinu í að búa til hárin á dýrin í einu atriði myndarinnar. „Mér fannst þetta ekkert endilega ótrúlega flott atriði en vegna alls hársins á dýrunum var þetta mjög erfitt í framkvæmd fyrir þá,“ sagði Aronofsky við DGA Quarterly.

Spurður hvers vegna alvöru dýr hafi ekki verið notuð í myndinni sagði hann: „Við höfum lært af þeim sem hafa gert svona lagað áður og það er ekki skynsamlegt. Það getur vakið ýmsar siðferðislegar spurningar að nota lifandi dýr. Það er líka mjög erfitt tæknilega. Við höfum lært af öðrum myndum hversu erfitt er að vinna með margar dýrategundir á sama stað.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×