Bíó og sjónvarp

Brá þegar hann sá stikluna

Freyr Bjarnason skrifar
„Mér brá þegar ég sá stikluna. Áður en hún er skoðuð á Youtube er mynd af okkur tveimur, þetta var svo absúrd,“ segir leikarinn Gunnar Helgason.

Hann er einn þriggja Íslendinga sem koma við sögu í stiklu nýjustu myndar Bens Stiller, The Secret Life of Walter Mitty, sem var að hluta til tekin upp hér á landi. „Það má ekki blikka þegar maður horfir á stikluna, þá missir fólk af mér,“ segir hann og hlær.

Aðrir sem sjást í sýnishorninu eru Ólafur Darri Ólafsson og Þórhallur Sigurðsson. Ari Matthíasson leikur einnig í myndinni.

Gunnar leikur hótelstarfsmann í myndinni og segir tökurnar hafa verið ótrúlegt ævintýri. „Ég held ég nái alveg upp í tvær mínútur í myndinni. Ég bjarga honum [Stiller] á síðustu stundu, án þess að ég vilji gefa upp plottið,“ segir hann. „Þetta var alveg svakalega gaman og ég er ótrúlega glaður og ánægður að vera beðinn um að leika í henni.“

Að sögn Gunnars er þetta Hollywood-hlutverk stærra en hann hefur farið með í íslenskum myndum. Eftir að tökum lauk á „Mitty“ lék hann í Ófeigur gengur aftur þar sem hann sagði ekki eitt aukatekið orð. Áður hafði hann farið með lítið hlutverk í Gauragangi.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×