Bíó og sjónvarp

Besta októberfrumsýning frá upphafi

Sara McMahon skrifar
Sú tekjuhæsta Spennumyndin Gravity er tekjuhæsta myndin sem frumsýnd er í október frá upphafi.
Sú tekjuhæsta Spennumyndin Gravity er tekjuhæsta myndin sem frumsýnd er í október frá upphafi.
Spennumyndin Gravity, sem skartar Söndru Bullock og George Clooney í aðalhlutverkum, var frumsýnd í Bandaríkjunum um síðustu helgi. Samkvæmt vefritinu Deadline er Gravity aðsóknarmesta októberfrumsýning frá upphafi.

Á frumsýningarhelginni einni saman halaði myndin inn sem nemur 6,6 milljörðum króna. Gravity sló þar með gamalt met teiknimyndarinnar Shark Tale sem frumsýnd var árið 2004 og þénaði 5,7 milljarða fyrstu sýningahelgina.

Þetta er jafnframt besta frumsýningarhelgi sem aðalleikarar myndarinnar hafa átt á ferli sínum. Fram að þessu voru The Blind Side og The Proposal tekjuhæstu kvikmyndir Bullock, þær höluðu inn rúmlega 4 milljörðum hvor. Batman & Robin var aftur á móti tekjuhæsta kvikmynd Clooney, með um 5 milljarða í tekjur.

Gravity er spennutryllir í leikstjórn Alfonso Cuarón. Myndin segir frá tveimur geimförum sem komast í hann krappan þegar geimskutla þeirra eyðileggst í miðjum leiðangri. Daði Einarsson er einn af mönnunum á bak við útlit geimmyndarinnar og starfaði hann náið með leikstjóranum við gerð hennar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×