Bíó og sjónvarp

Geðveik listakona og þunglyndur metalhaus

Sara McMahon skrifar
Málmhaus er frumsýnd á föstudag.
Málmhaus er frumsýnd á föstudag.
Málmhaus

Hera Karlsdóttir missir bróður sinn af slysförum og kennir sjálfri sér um dauða hans. Hún á erfitt með að takast á við sorgina en finnur sáluhjálp í þungarokkstónlist og dreymir um að verða rokkstjarna sjálf. Leikstjóri myndarinnar er Ragnar Bragason og með aðalhlutverk fer hin efnilega Þorbjörg Helga Dýrfjörð, auk Ingvars E. Sigurðssonar, Halldóru Geirharðsdóttur, Jörunds Ragnarssonar og Hannesar Óla Ágústssonar. Valdís Óskarsdóttir klippti myndina og tónlistarmaðurinn Pétur Ben sá um tónlistina.



Camille Claudel 1915

Myndin segir frá listakonunni Camille Claudel sem er lokuð inni á hæli í útjaðri Avignon. Claudel reynir að sannfæra alla þar um að hún sé í raun heilbrigð og heldur fast í vonina um að losna þaðan burt. Með aðalhlutverk myndarinnar fer Juliette Binoche. Leikstjóri myndarinnar er Bruno Dumont.



La vie d‘Adele

Græna ljósið frumsýnir frönsku kvikmyndina La vie d‘Adele sem fjallar um ástarsamband tveggja ungra kvenna. Myndin er byggð á franskri myndasögu eftir Julie Maroh. Myndin hlaut aðalverðlaunin á Cannes-kvikmyndahátíðinni í vor og naut mikilla vinsælda er hún var sýnd á kvikmyndahátíðinni RIFF nú fyrir stuttu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×