Bíó og sjónvarp

Framleiðir fyrir Cate Blanchett

Freyr Bjarnason skrifar
Eva Maria Daniels framleiðir fyrstu kvikmyndina sem Cate Blanchett leikstýrir.
Eva Maria Daniels framleiðir fyrstu kvikmyndina sem Cate Blanchett leikstýrir. nordicphotos/getty
Eva Maria Daniels verður annar af framleiðendum fyrstu kvikmyndarinnar sem leikkonan Cate Blanchett ætlar að leikstýra.

Kvikmyndin er sálfræðitryllir og fjallar um hversu langt foreldrar geta gengið til að vernda börnin sín. Hún verður byggð á skáldsögu Hermans Kock, The Dinner. Handritshöfundur verður Oren Moverman, sem skrifaði handritið að The Messenger.

Ekki er víst hvort Blanchett mun einnig leika í myndinni. Margir telja að hún fái tilnefningu til Óskarsverðlaunanna fyrir hlutverk sitt í nýjustu mynd Woody Allen, Blue Jasmine. Síðustu fimm ár hefur hún starfað, samhliða kvikmyndaleik sínum, sem einn af listrænum stjórnendum Sydney Theatre Company í Ástralíu.

Blanchett vann Óskarinn fyrir aukahlutverk sitt í The Aviator og hefur þvívegis til viðbótar verið tilnefnd til verðlaunanna eftirsóttu.

Eva Maria Daniels hefur framleitt þrjár aðrar kvikmyndir síðustu fjögur árin, eða The Romantics með Katie Holmes í aðahlutverki, Goats með David Duchovny í aðalhlutverki og What Maisie Knnew þar sem Julianna Moore og Alexander Skarsgård fóru með aðalhlutverkin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×