Menning

Kjarval bankanna

Hvítasunnudagur eftir Kjarval er eitt verkanna á sýningunni.
Hvítasunnudagur eftir Kjarval er eitt verkanna á sýningunni.
Sýningin Mynd af heild 2 – Kjarval bankanna, verður opnuð á Kjarvalsstöðum á morgun. Þar eru sýnd verk eftir Jóhannes S. Kjarval í eigu Arion banka, Íslandsbanka og Landsbanka. Íslensku bankarnir hafa keypt og varðveitt mörg verk eftir íslenska listamenn og eiga stór söfn verka eftir Kjarval. Verkin prýða fundarherbergi og afgreiðslur útibúa bankana um allt land.



Á þessari sýningu gefst í fyrsta sinn tækifæri til að sjá öll þessi verk á einum stað. Sýningin er framhald af þeirri viðleitni Listasafns Reykjavíkur að draga fram víðtæka mynd af ferli Kjarvals. Öll málverk eftir hann í eigu safnsins sjálfs voru dregin fram í dagsljósið á sýningunni Mynd af heild sem var opnuð á Kjarvalsstöðum í desember 2012. Nú er komið að Kjarval bankanna, þar sem er að finna margar gersemar sem hafa ekki sést fyrr á opinberum sýningum. Sýningin er í anda salon-sýninga þar sem málverkin þekja alla veggi Kjarvalssalarins, frá gólfi og upp í loft.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.