Bíó og sjónvarp

Tímaflakkari og hraðskreiður snigill

About Time segir frá tímaflakkara í leit að ástinni.
About Time segir frá tímaflakkara í leit að ástinni.
About Time er rómantísk gamanmynd sem segir frá Tim Lake sem dag einn fær að heyra það frá föður sínum að hann búi yfir þeim einstöku hæfileikum að geta ferðast aftur í tímann. Tim ákveður að nýta hæfileikana í þeim tilgangi að finna hina einu sönnu ást.

About Time er í leikstjórn Richard Curtis, sem er hvað best þekktur fyrir myndirnar Four Weddings and a Funeral, Notting Hill, Love Actually og Bridget Jones‘s Diary. Með aðalhlutverk myndarinnar fara Domhnall Gleeson, sem er sonur leikarans Brendan Gleeson, Rachel McAdams og Bill Nighy.

Teiknimyndin Túrbó segir frá sniglinum Túrbó sem dreymir um að komast örlítið hraðar yfir en hann gerir. Fyrir röð tilviljana öðlast hann óvænt kraft til að fara hraðar yfir en nokkurn snigil hefur áður farið.

Myndin er úr smiðju Dreamworks og meðal þeirra er ljá persónum myndarinnar raddir sínar eru Ryan Reynolds, Paul Giamatti, Michael Pena, rapparinn Snoop Dogg, Maya Rudolph, Michelle Rodriguez og Samuel L. Jackson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×