Körfubolti

Grindvíkingar án lykilmanns í vetur

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Petrúnella Skúladóttir
Petrúnella Skúladóttir Fréttablaðið/Valli
„Þetta spyrst fljótt út hérna,“ segir Petrúnella Skúladóttir, leikmaður Grindavíkur. Hinar gulklæddu þurfa að venjast lífinu án framherjans í eitt tímabil því Petrúnella er barnshafandi. Hún hefur þó ekki áhyggjur af gengi liðsins án sín.

„Þær hafa styrkt hópinn svo vel þannig að það ætti ekki að muna. Ég hef bullandi trú á þeim,“ segir Petrúnella sem hefur verið í stóru hlutverki í landsliðinu.

Hún á von á sér í mars en faðirinn er Jóhann Árni Ólafsson, leikmaður karlaliðs Grindavíkur. Petrúnella setur stefnuna á að snúa aftur á næstu leiktíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×