Bíó og sjónvarp

Spilafíkill á milli steins og sleggju

Justin Timberlake og Ben Affleck fara með aðalhlutverkin í Runner Runner.
Justin Timberlake og Ben Affleck fara með aðalhlutverkin í Runner Runner.
Tvær kvikmyndir verða frumsýndar á föstudag, önnur er Runner Runner með Ben Affleck og Justin Timberlake í aðalhlutverkum, og hin er Welcome to the Punch með James McAvoy og Mark Strong í aðalhlutverkum.

Runner Runner segir frá ungum námsmanni sem tapar aleigu sinni í netpóker. Hann grunar eiganda pókersíðunnar um að hafa svindlað á sér og ákveður að hitta hann undir fjögur augu. Þegar alríkislögreglan blandast í málið áttar ungi maðurinn sig á því að hann er fastur milli steins og sleggju og ætli hann að lifa af þarf hann að koma með krók á móti bragði.



Welcome to the Punch fjallar um breskan glæpamann sem kemur úr felum þegar sonur hans verður fyrir byssuskoti. Um leið gefur hann lögreglumanninum Max Lewinsky enn eitt tækifærið til að handsama sig, en þegar þeir mættust síðast lá Lewinsky eftir óvígur en glæpamaðurinn flúði til Íslands.

Loks hefst kvikmyndahátíðin RIFF í dag og stendur hún til 6. október. Opnunarmynd hátíðarinnar er This is Sanlitun í leikstjórn Róberts Inga Douglas.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×