Bíó og sjónvarp

Finnar og framtíðartryllir

Richard Riddick berst fyrir lífi sínu í spennumyndinni Riddick sem frumsýnd er annað kvöld.
Richard Riddick berst fyrir lífi sínu í spennumyndinni Riddick sem frumsýnd er annað kvöld.
Hasarmyndin Riddick er frumsýnd annað kvöld. Myndin er í leikstjórn Davids Towhy og skartar Vin Diesel í aðalhlutverki. Myndin segir frá Richard Riddick, sem fæddur er á plánetunni Furya og er eini eftirlifandi maðurinn á plánetunni. Illmennið Zhylaw hafði látið myrða drengi og karlmenn, í anda Biblíunnar, af ótta við að einhver þeirra mundi velta honum úr sessi. Síðan þá hefur Riddick verið á stanslausum flótta undan vígamönnum og hausaveiðurum sem vilja annaðhvort drepa hann eða fanga hann fyrir verðlaunafé.



Opnunarmynd Norrænu kvikmyndaveislunnar í Bíó Paradís er einnig frumsýnd. Sú ber titilinn Open up to Me, eða Kerron Sinulle Kaiken á finnsku, og er eftir leikstjórann Simo Halinen. Myndin fjallar um það hvernig hægt er að takast á við lífið meðan reynt er að fela það sem bærist hið innra fyrir samferðamönnum sínum. Kvikmyndin fékk frábærar viðtökur áhorfenda og gagnrýnenda þegar hún var frumsýnd í Finnlandi fyrr á árinu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×