Á milli steins og sleggju Sara McMahon skrifar 12. september 2013 11:00 Liam Hemsworth leikur ungan mann er lendir mitt á milli tveggja efnamanna er keppast um völd.
Spennumyndin Paranoia er byggð á samnefndri skáldsögu Josephs Finder frá árinu 2004. Myndin er í leikstjórn Robert Luketic og skartar Harrison Ford, Liam Hemsworth, Gary Oldman og Amber Heard í helstu hlutverkum. Paranoia segir frá tækniséníinu Adam Cassidy sem starfar hjá fjarskiptafyrirtæki í eigu milljarðamæringsins Nicholas Wyatt. Vegna óhlýðni við yfirboðara sína missir Cassidy starf sitt en hann telur sig hafa náð fram hefndum með því að ræna kreditkorti fyrirtækisins og bjóða vinum sínum út á lífið. Stuttu síðar er Cassidy þó kallaður á fund Wyatts og honum tjáð að hann verði kærður fyrir fjársvik nema hann útvegi Wyatt upplýsingar um helsta samkeppnisaðila hans. Þar með hefst æsispennandi atburðarás og kemst Cassidy brátt að því að hann er aðeins peð í valdabaráttu tveggja milljarðamæringa sem eru áfjáðir í því að knésetja hvor annan.Leikstjóri myndarinnar, Robert Luketic, hefur leikstýrt kvikmyndum á borð við Legally Blonde með Reese Witherspoon í aðalhlutverki, Monster-in-Law, The Ugly Truth og Killers. Hann var á táningsaldri þegar fyrsta mynd hans var valin besta kvikmyndin á ATOM-kvikmyndahátíðinni í Ástralíu. Hann hóf síðar nám við einn virtasta kvikmyndaskóla Ástralíu, Victorian College of Arts – School of Film and Television. Leikarinn Kevin Spacey átti upphaflega að fara með hlutverk Nicholas Wyatt en að lokum var það Gary Oldman sem hreppti hlutverkið. Þetta er í annað sinn sem þeir Oldman og Ford leiða saman hesta sína en þeir léku saman í kvikmyndinni Air Force One árið 1997. Þar, líkt og í Paranoia, léku þeir andstæðinga; Ford lék forseta Bandaríkjanna og Oldman lék illmennið Egor Korshunov sem rænir forsetanum og fjölskyldu hans. Paranoia hefur fengið nokkuð slaka dóma frá gagnrýnendum og þá sérstaklega hinn ungi Hemsworth, sem hlotið hefur slæma útreið fyrir frammistöðu sína í myndinni. Á vefsíðunni Rottentomatoes hlýtur myndin 4 prósent í einkunn og Metacritic gefur henni 32 prósent í einkunn.
Mest lesið Stjörnulífið: Skvísupartý, konudagurinn og Söngvakeppnin Lífið Svona skiptust atkvæðin í Söngvakeppninni í heild sinni Lífið Segir galið að vara við kjöti en ekki sælgæti Lífið Setja markið á 29. sætið Lífið Gurrý selur slotið Lífið Einar og Milla eiga von á barni Lífið Allskonar trix til að spara mikla fjármuni Lífið Vinur Patriks kom upp um hann Lífið Minnast Árna Grétars á maraþon-minningartónleikum Lífið Ekkert gefið eftir í elegansinum Tíska og hönnun Fleiri fréttir Bezos bolar Broccoli burt frá Bond Næsti Dumbledore fundinn Bauð Bandaríkin velkomin í hóp konungsríkja Jóhannes Haukur fer mikinn í Marvel stiklu Svaraði kallinu frá Ben Stiller Ljósbrot hlaut aðalverðlaun í Gautaborg Vestfirski hryllingurinn: „Þetta er það erfiðasta sem ég hef gert“ Þau eru tilnefnd fyrir verstu kvikmyndagerðina Sjón og Eggers leiða hesta sína saman í nýjum varúlfahryllingi Deila um gervigreind skekur Hollywood í aðdraganda Óskarsins Sigurjón minnist David Lynch: „Jonni, við verðum að gera eitthvað fyrir Ísland“ Kvikmyndirnar sem beðið er eftir 2025 Embla og Timothée Chalamet glæsileg á dreglinum Krefur Disney um tíu milljarða dala Þakkar fleiru en Demi Moore fyrir langþráð metár Vestfirski hryllingstryllirinn frumsýndur vestanhafs Snerting skaut Deadpool ref fyrir rass 2024 Sjá meira