Bíó og sjónvarp

Fundu loks Steele og Grey

Dakota Johnson og Charlie Hunnam fara með aðalhlutverkin í kvikmynd sem byggð er á 50 gráum skuggum.
Dakota Johnson og Charlie Hunnam fara með aðalhlutverkin í kvikmynd sem byggð er á 50 gráum skuggum. Nordicphotos/getty
Dakota Johnson og Charlie Hunnam munu fara með hlutverk Anastasiu Steele og Christian Grey í kvikmynd sem byggð er á skáldsögunni Fimmtíu gráir skuggar. Sam Taylor Johnson mun leikstýra myndinni, en hún leikstýrði myndinni Nowhere Boy frá árinu 2009.

Fyrir þá sem ekki þekkja til Dakota Johnson, þá er stúlkan fyrrverandi fyrirsæta og dóttir leikaranna Dons Johnson og Melanie Griffith. Hún hefur áður leikið í myndum á borð við 21 Jump Street, The Social Network og The Five-Year Engagement.

Hunnam er hvað þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Jackson „Jax“ Teller í sjónvarpsþáttunum Sons of Anarchy. Hann fór einnig með aðalhlutverkið í stórmyndinni Pacific Rim í leikstjórn Guillermo del Toro.

Griffith tilkynnti um ráðningu dóttur sinnar á Twitter síðu sinni og er afskaplega stolt af stúlkunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×