Bíó og sjónvarp

Hrollvekjur, fjöldamorð og flugvélar

Teiknimyndin Flugvélar verður frumsýnd á föstudaginn.
Teiknimyndin Flugvélar verður frumsýnd á föstudaginn.
Þrjá myndir verða frumsýndar í kvikmyndahúsum föstudaginn 30. ágúst. Má þar fyrst nefna teiknimyndina Flugvélar, eða Planes líkt og hún heitir á ensku. Myndin fjallar um Dusty, litla flugvél sem dreymir um að taka þátt í flugkeppni. Eina vandamálið er að hann er lofthræddur.



Þá verður heimildarmyndin The Act of Killing einnig sýnd. Myndin fylgist með fyrrverandi foringja dauðasveita í Indónesíu setja á svið fjöldamorð sem þeir frömdu á sjöunda áratug síðustu aldar. Atriðin endurleika þeir í þeim kvikmyndastílum sem þeir óska sér, þar á meðal í klassískum Hollywood-glæpastíl og í stórbrotnum söngleikjastíl.



Hrollvekjan The Conjuring er einnig frumsýnd í vikunni. Myndin er í leikstjórn James Wan, þess sama og leikstýrði Saw, Dead Silence og Insidious. Sagan er byggð á einni af frásögnum hjónanna Ed og Lorraine Warren, en þau voru þekkt fyrir að rannsaka atvik sem grunur lék á að væru af yfirskilvitlegum toga, þar á meðal hið þekkta Amityville mál.

Að lokum má nefna myndina Hross í oss. Kvikmyndin er eftir Benedikt Erlingsson og er grimm sveitarómantík um manninn í hrossinu og hrossið í manninum. Örlagasögur af fólki í sveit eru sagðar frá sjónarhorni hestsins þar sem ást, kynlíf, hross og dauði fléttast saman með skelfilegum afleiðingum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×