Bíó og sjónvarp

Tískan úr Hungurleikunum

Búningarnir í Hungurleikunum eru einstakir.
Búningarnir í Hungurleikunum eru einstakir.
The Hunger Games: Catching Fire, framhaldsmyndar Hungurleikanna, er beðið með mikilli eftirvæntingu enda sló fyrsta mynd þríleiksins eftirminnilega í gegn. Lionsgate framleiðir myndirnar og hafa þeir unnið mikið og óvenjulegt kynningarstarf fyrir Catching Fire. Nú síðast var vefsíðunni Capitolcouture.pn komið á laggirnar, en þar geta aðdáendur myndanna skoðað tískuna í Höfuðborginni og kynnst keppendum Hungurleikanna.

Vefsíðan þykir minna á vefsíðu tískuritsins fræga, Vogue, og þykir sérlega smekkleg. Búningahönnuður Hungurleikanna er Judianna Makovsky, en sú hefur einnig unnið við Harry Potter-myndirnar, X-Men og A Little Princess frá árinu 1995.

Áætlaður frumsýningardagur Hunger Games: Catching Fire er 22. nóvember.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×