Bíó og sjónvarp

Hasar, drama og teikningar

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Ingvar E. Sigurðsson, Steinn Ármann Magnússon, Helgi Björnsson og Kristbjörg Kjeld eru meðal leikenda.
Ingvar E. Sigurðsson, Steinn Ármann Magnússon, Helgi Björnsson og Kristbjörg Kjeld eru meðal leikenda.
Hross í oss er kvikmynd í leikstjórn Benedikts Erlingssonar, en hún verður frumsýnd miðvikudaginn 28. ágúst næstkomandi. Myndin er grimm sveitarómantík um hið mennska í hrossinu og hrossið í manninum. Ást, kynlíf, hross og dauði fléttast saman með skelfilegum afleiðingum.

Myndin hefur verið valin til þátttöku á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni San Sebastián í september. Myndin mun keppa í aðalkeppni hátíðarinnar.





Sama dag er kvikmyndin Elysium frumsýnd, en hún skartar Matt Damon í aðalhlutverki. Árið 2154 eru til tvær stéttir manna; mjög auðugt fólk sem býr í geimstöðinni Elysium og svo hinir sem búa á yfirfullri Jörðinni, sem er öll í rúst.

Percy Jackson: Sea of Monsters er heitið á annarri myndinni sem gerð er um ævintýri sonar gríska sjávarguðsins Póseidons, en hún er sjálfstætt framhald myndarinnar The Lightning Thief frá árinu 2010. Myndin var frumsýnd í gær.





Kick-Ass 2 er framhald á fyrri mynd leikstjórans Jeff Wadlow. Eftir að hafa sýnt klikkað hugrekki sem sjálfskipaða ofurhetjan Kick-Ass hrindir Dave Lizewski af stað nýrri bylgju sjálfskipaðra grímuklæddra ofurhetja. Myndin var frumsýnd í gær.

Á morgun, þann 23. ágúst, eru tvær myndir frumsýndar. Annars vegar teiknimyndin Turbo, sem fjallar um snigil sem dreymir stórt, og kvikmyndin World‘s End, sem fjallar um æskuvini sem fara á pöbbarölt á barinn World‘s End.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×