Bíó og sjónvarp

Gibson leist ekki á hestaklámið

Hanna Ólafsdóttir skrifar
Benedikt Erlingsson og Mel Giibson bregða á leik en Mel var staddur hér á landi sumarið 2008.
Benedikt Erlingsson og Mel Giibson bregða á leik en Mel var staddur hér á landi sumarið 2008.
„Ég reyndi að fá Mel Gibson til að leika í myndinni en hann varð því miður af þessu frábæra tækifæri, “ segir Benedikt Erlingsson, leikari og leikstjóri myndarinnar Hross í oss.

Benedikt og Mel hittust þegar Benedikt var beðinn um að vera leiðsögumaður fyrir Mel sumarið 2008 þegar hann var staddur hér á landi ásamt tveimur sonum sínum.

Að sögn Benedikts var Mel hér í sumarfríi en notaði einnig tímann til að fara á víkingaslóðir og skoða mögulega tökustaði fyrir kvikmynd sem hann var að vinna að. „Ég var rétt byrjaður að segja honum söguþráðinn þegar hann stoppaði mig af og sagði: „No Benni, this is horse porn,“ sem útleggst á íslensku sem nei Benni, þetta er hestaklám.“

Benedikt segir ekki hafa komið að sök að Hollywood- stjarnan hafi hafnað hlutverkinu enda hafi hann fengið frábæran mann í hlutverkið. „Það hefði kannski hjálpað upp á fjármögnum að gera að hafa Mel í myndinni en ég fékk frábæran mann að nafni Juan Camillo til að leika hlutverkið. Ég þurfti því ekki stjörnu heldur bjó ég til stjörnu í staðinn.“

Hross í oss verður frumsýnd þann 28. ágúst í Háskólabíó. „En Mel Gibson verður fjarri góður gamni, “ segir Benedikt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×