Bíó og sjónvarp

Sumarlegar frumsýningar

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Stilla úr kvikmyndinni The Way, Way Back
Stilla úr kvikmyndinni The Way, Way Back
Paradise: Love (Paradies: Liebe)

verður frumsýnd á morgun í Bíó Paradís. Hún er fyrsta myndin í Paradísar-trílógíu leikstjórans Ulrichs Seidl sem segir sögu 50 ára gamallar konu, Teresu, sem ferðast til Kenía sem kynlífsferðamaður. Þar eru konur eins og Teresa þekktar sem „sykur-mömmur“, en í myndinni er ýmsum áleitnum spurningum varpað fram og ólíkir menningarheimar mátaðir saman.





The Way, Way Back

verður sýnd í Háskólabíói, Laugarásbíói og Borgarbíói og hófust sýningar á þriðjudaginn. Myndin fjallar um Duncan, feiminn en kláran fjórtán ára strák sem fer í sumarfrí með móður sinni, Pam. Með í för er nýi kærastinn hennar, Trent, leikinn af Steve Carrell, og dóttir hans, Steph. Duncan kemur ekki vel saman við Trent, er mjög feiminn við dóttur hans, og til að bæta gráu ofan á svart er hann hægt og hægt að fjarlægjast móður sína. Í sumarfríinu kynnist hann starfsmanni vatnsskemmtigarðs, Owen, sem nálgast lífið á óhefðbundinn hátt.







We are the Millers

er sýnd í Sambíóunum og var frumsýnd í gær. Myndin fjallar um marijúanasala sem fær bláókunnugt fólk til að þykjast vera fjölskylda hans og fær það til að hjálpa sér að smygla farmi af marijúana yfir landamæri Mexíkó til Bandaríkjanna.

We're the Millers er eftir handritshöfundana Bob Fisher og Steve Faber sem skrifuðu meðal annars The Wedding Crashers.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×