Bíó og sjónvarp

Sló í gegn á Sundance-hátíðinni

Kristjana Arnarsdóttir skrifar
Hinn 14 ára Duncan á í vandræðum með sjálfstraustið en eftir að hann kynnist framkvæmdastjóra vatnsrennibrautagarðsins Water Wizz fer sjálfstraustið stöðugt batnandi.
Hinn 14 ára Duncan á í vandræðum með sjálfstraustið en eftir að hann kynnist framkvæmdastjóra vatnsrennibrautagarðsins Water Wizz fer sjálfstraustið stöðugt batnandi.
Kvikmyndin The Way Way Back var frumsýnd í íslenskum bíóhúsum í gær. Myndin segir frá hinum 14 ára Duncan sem heldur af stað í ferðalag með móður sinni, stjúpsystur og stjúpföður, en það er hinn bráðskemmtilegi Steve Carrell sem fer með hlutverk stjúpföðurins.

Duncan á í vandræðum með sjálfstraustið og ekki hjálpar leiðinleg framkoma stjúpans. Hann skellir sér í vatnsrennibrautagarðinn Water Wizz, kynnist þar framkvæmdastjóranum Owen og verða þeir hinir mestu mátar. Owen hjálpar honum að eiga í samskiptum við hitt kynið og rífur upp sjálfstraustið í leiðinni.

Myndin er bæði skrifuð og leikstýrt af þeim Jim Rash og Nat Faxon en þeir fengu Óskarsverðlaunin árið 2011 fyrir handrit sitt að kvikmyndinni The Descendants með George Clooney í aðalhlutverki.

The Way Way Back var frumsýnd á Sundance-kvikmyndahátíðinni í vor og þótti gestum hátíðarinnar mikið til hennar koma. Vefsíðan Rottentomatoes.com segir meðal annars að leikarar myndarinnar blómstri í hlutverkum sínum og að handritið sé einkar vel skrifað. Þá fær hún 7,8 í einkunn á vefsíðunni IMDB.com.

Það er hinn ungi og efnilegi Liam James sem leikur Duncan, en James leikur einnig í spennuþáttunum The Killing, bandarísku útgáfu dönsku þáttanna Forbrydelsen.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×