Bíó og sjónvarp

Leikur ekki aftur í The Avengers

Tom Hiddlestone lék Loka í kvikmyndinni The Avengers. Hann verður ekki með í framhaldsmyndinni.
Tom Hiddlestone lék Loka í kvikmyndinni The Avengers. Hann verður ekki með í framhaldsmyndinni.
Tom Hiddleston hefur staðfest að hann muni ekki snúa aftur í framhaldsmynd The Avengers.

Hiddleston, sem fór með hlutverk Loka, var vinsæll á meðal aðdáenda kvikmyndarinnar en hann er sannfærður um að hlutverkið passi ekki inn í framhaldsmyndina.

„Loki verður ekki með. Ég held að það kæmi ekkert nýtt út úr því að hafa hann aftur með. Joss [Whedon] gaf mér svo margar frábærar senur til að vinna með í þeirri síðustu að ég held að við myndum bara reyna að endurtaka okkur ef Loki yrði með og það yrði eflaust ekki eins vel gert og í fyrri myndinni.“

Ekki er von á myndinni, Avengers: Age of Ultron, fyrr en um miðbik ársins 2015 og þurfa því aðdáendur Marvel-myndasagnanna að bíða í dágóðan tíma eftir framhaldinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×