Bíó og sjónvarp

Skrímsli og látnir lögreglumenn

Sara McMahon skrifar
Ryan Reynolds og Jeff Bridges.
Ryan Reynolds og Jeff Bridges.
Spennumyndin R.I.P.D. segir frá sérstakri lögregludeild sem kallast Rest In Peace Department.

Lögreglumaðurinn Roy Pulsifer, sem leikinn er af Jeff Bridges, er þaulreyndur innan deildarinnar en markmið hennar er að hafa uppi á illum öndum sem dulbúa sig sem manneskjur. Pulsifer semur ekki við nýlátinn félaga sinn, sem leikinn er af Ryan Reynolds, en þeir leggja ágreining sinn til hliðar til að komast til botns í erfiðu máli.

Teiknimyndin Monsters University, eða Skrímslaháskólinn eins og titillinn er þýddur á íslensku, er nýjasta teiknimyndin frá Pixar og Disney. Í myndinni fá áhorfendur að kynnast því hvernig Mike og Sully, eða Magnúsi og Sólmundi eins og þeir félagar nefnast hér á landi, verður til vina.

Magnúsi og Sólmundi er nefnilega ekki vel hvorum við annan er þeir hefja nám við Skrímslaháskólann og neyðast til að deila saman herbergi. Þeim er báðum í mun að læra hræðslutæknina sem skrímslum ber að kunna, þótt þeir beri sig misjafnt að. En brátt gerast Magnús og Sólmundur miklir vinir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×