Gagnrýni

Hlédrægur og frábær Ocean

Sara McMahon skrifar
Tónlistarmaðurinn Frank Ocean lauk tónleikaferðalagi sínu á Íslandi á þriðjudag. Tónleikarnir voru vel lukkaðir.
Tónlistarmaðurinn Frank Ocean lauk tónleikaferðalagi sínu á Íslandi á þriðjudag. Tónleikarnir voru vel lukkaðir. Nordicphotos/getty
Tónlist: Frank Ocean, Sena, Laugardalshöll



Bandaríski hiphop og RnB tónlistarmaðurinn Frank Ocean lauk Channel Orange-tónleikaferðalagi sínu í Laugardalshöll á þriðjudagskvöld. Það kom undirritaðri skemmtilega á óvart hversu einföld sviðsmyndin var; af einhverjum ástæðum hafði ég búist við fáklæddum dönsurum og hressum bakröddum, en þess í stað var hinn hæfileikaríki og eilítið hlédrægi Ocean í fyrrirúmi allan tímann.

Þegar tónlistarmaðurinn gekk loks á sviðið ærðist salurinn og iPhone-símarnir ruku á loft (og héldust þar alla tónleikana). Smellurinn Novacane var annað lag kappans og tókst vel til þó bassatromman hafi á köflum verið of hávær, en því var kippt í liðinn um leið. Tvö rólegri lög fylgdu í kjölfarið og datt þá stemningin niður hjá yngri tónleikagestum (þeim sömu og munduðu símana).

Ocean spjallaði lítið á milli laga en tók sér þó tíma til að mynda áhorfendaskarann og bað svo um leyfi tónleikagesta til að spila tvö ný lög, sem lofa svo sannarlega góðu um framhaldið. Síðara lagið var rólegt með flottum bassatakti og trommum. Það er margt í tónlist Ocean sem minnir á Prince og Stevie Wonder sem er ekki að undra því hann hefur einmitt talið þá til áhrifavalda sinna.

Þegar nokkuð var liðið á tónleikana tók Ocean smellinn Pyramids sem er jafnvel betra þegar það er spilað „live“. Hann lauk svo tónleikunum á þeim orðum að hann væri maður fárra orða og kysi að enda hverja tónleika á laginu Wiseman. Setningin „In a dream you saw a way to survive and you were full of joy“ eftir listakonuna Jenny Holzer laust svo upp á skjáinn í þann mund sem tónlistarmaðurinn yfirgaf sviðið.

Ocean er greinilega mikill tónlistarmaður og hæfileikaríkur söngvari og báru tónleikarnir þess vitni enda voru þeir vel lukkaðir í alla staði.



Niðurstaða: Vel lukkaðir tónleikar efnilegs tónlistarmanns.


Tengdar fréttir

Fjölmenni á Frank Ocean

Það var gríðarleg stemning á tónleikum Frank Ocean í Laugardalshöllinni í kvöld og troðfullt út úr dyrum.

Frank Ocean er mættur

Bandaríski tónlistarmaðurinn Frank Ocean er mættur til landsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×