Bíó og sjónvarp

Íslenska kvikmyndin XL sýnd á alþjóðlegri kvikmyndahátíð

Kristjana Arnarsdóttir skrifar
María Birta Bjarnadóttir, Marteinn Þórsson leikstjóri og Ólafur Darri Ólafsson stilltu sér upp fyrir ljósmyndara hátíðarinnar á þriðjudaginn.Mynd/AFP
María Birta Bjarnadóttir, Marteinn Þórsson leikstjóri og Ólafur Darri Ólafsson stilltu sér upp fyrir ljósmyndara hátíðarinnar á þriðjudaginn.Mynd/AFP
„Við erum mjög glöð með viðtökurnar. Það var fullur salur á frumsýningunni, 1200 manns, sem var frábært,“ segir leikkonan María Birta Bjarnadóttir sem er stödd á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Karlovy Vary í Tékklandi.

Kvikmynd Marteins Þórssonar, XL, var valin í aðalkeppni hátíðarinnar en María Birta fer með aðalhlutverk í myndinni ásamt Ólafi Darra Ólafssyni. Kvikmyndin var sýnd á þriðjudagskvöld og segir María Birta að undirbúningurinn hafi ekki verið mikill. „Við þurftum að kíkja í smá fyrirpartí þar sem ég fór í viðtal og nokkrar myndatökur. Svo vorum við sótt, þar sem búið var að ákveða hver færi í hvaða bíl. Þaðan keyrðum við svo á rauða dregilinn.“

María Birta klæddist svörtum kjól á rauða dreglinum en skipti yfir í sumarlegan kjól frá Alexander McQueen fyrir viðtölin og myndatökurnar.

Karlovy Vary-kvikmyndahátíðin er ein sú elsta í heimi og er ein af fjórtán kvikmyndahátíðum sem teljast til hátíða í A-flokki. Árið 2007 hlaut íslenska kvikmyndin Mýrin aðalverðlaun hátíðarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×