Bíó og sjónvarp

Alvöru vestri og gömul klassík

Kvikmyndin Lone Ranger var frumsýnd í gær en myndin skartar stórleikaranum Johnny Depp í aðalhlutverki. Depp leikur indíánann Tonto sem berst gegn spillingu og græðgi í villta vestrinu ásamt lögregluþjóninum fyrrverandi, John Reid eða „Lone Ranger“.

Það er leikarinn Armie Hammer sem fer með hlutverk Lone Ranger en einhverjir gætu kannast við kauða úr Facebook-myndinni The Social Network, þar sem hann lék tvíburana Cameron og Tyler Winklevoss.

Það er leikstjórinn Gore Verbinski sem leikstýrir myndinni en hann leikstýrði einnig þríleiknum Pirates of the Caribbean. Þetta er því ekki í fyrsta skipti sem þeir Verbinski og Depp starfa saman. Disney-samsteypan og Jerry Bruckheimer Films framleiða myndina.



Bíó Paradís sýnir í kvöld kvikmyndina Hard Ticket to Hawaii frá árinu 1987, en í sumar mun kvikmyndahúsið sýna tvær klassískar kvikmyndir í viku hverri. Hard Ticket to Hawaii segir frá útsendurunum Donnu og Taryn sem stöðva afhendingu á demöntum fyrir slysni, en demantarnir voru ætlaðir eiturlyfjabaróninum Seth Romero.

Seth er ákveðinn í að ná í demantana og í kjölfarið brýst út hröð atburðarás, sem flækist enn frekar þegar baneitruð risaslanga sleppur laus.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×