Skoðun

Elsku nýju þjóðarleiðtogar

Guðrún Högnadóttir skrifar
Til lukku með nýja ábyrgð á okkar sameiginlega vinnustað: Íslandi ehf. Mig langar að fylgja ykkur úr hlaði með nokkrum hvatningarorðum í þeirri góðu trú að næstu fjögur ár verði ár farsældar og festu, tímabil sem erlendir þjóðarleiðtogar geti tekið til fyrirmyndar í sinni endurreisn. Sem forgöngumenn veit ég að þið þekkið mikilvægi framtíðarsýnar, kjarks og þrautseigju í starfi ykkar. Og sem leikmenn veit ég að hraði breytinga og kröfur samtímans snerta ykkur öll. Því fylgja hér á eftir nokkur heilræði.

Forgangsraðið.Þeir leiðtogar sem setja 2 til 3 mál í forgang klára almennt 2 til 3 mál. Þeir sem eru með 5 til 7 markmið koma kannski einu máli næstum því í höfn. Því fleiri markmið, þeim mun minni líkur á árangri. Hafið kjarkinn og agann til að einblína á fá, en afgerandi mál í einu.  Og klárið þau.  Heimilin.  Höftin. Hengjan.  Annað kemur í kjölfar slíkra góðra verka.

Hugsið. Gagnrýnin hugsun er forsenda framfara. Leitið þekkingar og ráða út fyrir ykkar þrönga hring. Mátið ákvarðanir ykkar á aðra en spegilmyndir ykkar sjálfra.

Hlustið. Stjórnmálaleiðtogar fortíðar fengu þjálfun í ræðumennsku. Áhrifamenn framtíðar fá þjálfun í hlustun. Sönn forysta byggir á virðingu fyrir fólki. Skilningi á ólíkum skoðunum. Guð gaf okkur tvö eyru og einn munn. Talið minna. Hlustið meira. Látið verkin tala. Eins og segir í Hávamálum: Svo nýsist fróðra hver fyrir.



Hreinsið til. Kveðjið gamlar erjur og syndir. Biðjist afsökunar og fyrirgefið, ef þess þarf. Frelsið ykkur frá hagsmunum forvera ykkar – pólitískum, landfræðilegum og fjárhagslegum. Málið tæra mynd af því samfélagi sem við viljum færa barnabörnum okkar og leyfið ekki frændhygli, græðgi eða þröngsýni að menga þá mynd.

Lærið. Af mistökum ykkar. Af mistökum annarra. Gerið upp hug ykkar um hvert ykkar framlag til framtíðarlandsins verður. Og lærum saman á leiðinni.

Virkið okkur. Þið eigið 322.930 samstarfsmenn sem eru tilbúnir að bretta upp ermar í þágu þjóðar. Haldið samtalinu gangandi á veraldarvefnum, á kaffihúsunum, í háskólunum. Leyfið okkur að taka með ykkur ábyrgð á stóru málunum með könnunum og þjóðaratkvæðagreiðslu. Finnið nýtt fólk til mikilvægra verka. Það leynist snillingur á hverju götuhorni.

Nærist. Þetta er harður heimur. Gleymið ekki lýsinu. Svefninum. Grænkálinu. Góðum bókum. Lélegum bíómyndum. Göngutúrum. Mörgum stundum í faðmi fjölskyldunnar. Tengið ykkur reglulega við af hverju þið tókuð að ykkur þetta verkefni. Og virkið þá orku til góðra verka.

Ég óska ykkur velfarnaðar á áframhaldandi sameiginlegri vegferð okkar allra!

Kveðja, Guðrún.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×