Lífið

Íslendingar eru vinalegir og glaðværir

Sara McMahon skrifar
Tom og Natasha Mills ásamt börnum sínum. Mynd/Tom Mills
Tom og Natasha Mills ásamt börnum sínum. Mynd/Tom Mills
Breski ljósmyndarinn Tom Mills og fjölskylda hans eru miklir Íslandsvinir og hafa heimsótt landið reglulega frá 2004. Tveir synir Mills-hjóna bera jafnframt rammíslensk nöfn.

„Ég heimsótti Ísland fyrst í janúar árið 2004. Þá var allt á kafi í snjó og þrátt fyrir að hafa leigt jeppa komumst við ekki á alla þá staði sem við vildum heimsækja. Ég var ákveðinn í að koma aftur og skoða landið betur og sú tilfinning hefur enn ekki liðið mér úr brjósti þrátt fyrir fjölda heimsókna,“ segir Tom Mills um fyrstu heimsókn sína til landsins. Hann segir íslenskt landslag síbreytilegt og á erfitt með að gera upp við sig hvaða árstími sé bestur fyrir Íslandsheimsókn.

„Á veturna er hægt að sjá norðurljósin og á sumrin gefst manni kostur á að ferðast um hálendið sem á sér enga hliðstæðu í heiminum. Íslendingar eru jafn heillandi og náttúran; vinalegir og glaðværir. Mér var sagt að vinátta við Íslending myndi endast út ævina og það hefur reynst satt.“

Synir Mills-hjónanna bera báðir íslensk goðanöfn og heita Loki Gunnar og Óðinn Gunnar. Tom viðurkennir að hjónin hafi hug á að flytja til Íslands í framtíðinni og að það hafi haft áhrif á nafnavalið.

„Það er draumur að flytja til Íslands í framtíðinni og okkur þótti skemmtilegt að strákarnir hétu íslenskum nöfnum í stað nafna á borð við Steve eða Dave,“ segir hann að lokum.

Skoða má myndir eftir Tom á heimasíðu hans.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.