Forgangröðun vegna fæðingarorlofs Einar Kristinn Guðfinnsson skrifar 1. mars 2013 06:00 Það er rétt sem Ólafur Þ. Stephensen skrifar í forystugrein Fréttablaðsins sl. þriðjudag, um fæðingarorlofsmálin. Því eins og ritstjórinn bendir réttilega á: „Það fyrirkomulag að greiða foreldrum 80% launa í fæðingarorlofi, upp að ríflegu hámarki, átti svo að hvetja feður til að taka sinn sjálfstæða rétt til fæðingarorlofs. Í ljósi þess að flestir karlar hafa hærri laun en maki þeirra hefði hvatinn fyrir feður að nýta réttinn orðið ónógur annars.“ Á síðustu fjórum árum hefur þetta fyrirkomulag verið sett í uppnám, feðrum í fæðingarorlofi fækkað og löggjöfin sem átti m.a. að stuðla að kynjajafnrétti því leitt til hins gagnstæða. Við Unnur Brá Konráðsdóttir, fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, bentum á þetta í minnihlutaáliti núna á aðventunni, þegar samþykktar voru breytingar á fæðingarorlofslöggjöfinni. Eftir látlausan niðurskurð fjármagns til þessa málaflokks allt kjörtímabilið opnuðust skyndilega allar gullkistur og gefin voru fyrirheit um stóraukin framlög. Gallinn var hins vegar sá að efndirnar eiga að koma á nýju kjörtímabili, þegar núverandi ríkisstjórn verður væntanlega farin veg allrar veraldar. Breytingunum verður því velt á komandi stjórnvöld. Þeim verður ætlað að finna fjármuni úr ofurskuldugum ríkissjóði til þess að efna loforð og fyrirheit sem gefin eru af stjórnvöldum sem eru um það bil að missa umboð sitt. Það er því ljóst að kostnaðinum af þessum breytingum er vísað inn í framtíðina. Það getur ekki talist ábyrgt, skynsamlegt eða trúverðugt.Helmings niðurskurður Skoðum aðeins staðreyndir: Á árunum 2007 til ársins 2009 námu útgjöld Fæðingarorlofssjóðs um 11-13 milljörðum kr. árlega á núgildandi verðlagi og voru hæst árið 2009 eða tæpur 13,1 milljarður kr. Eftir það hafa greiðslur úr sjóðnum minnkað verulega. Þær voru 11 milljarðar kr. árið 2010, 8,6 milljarðar kr. árið 2011 og 7,3 milljarðar kr. á síðasta ári og stefnt er að því að þær nemi um 8,5 milljörðum kr. í ár. Í greinargerð fæðingarorlofsfrumvarpsins segir: „Þykir því mikilvægt að hefja endurreisn fæðingarorlofskerfisins þannig að kerfið verði í það minnsta jafnsett því kerfi sem var í gildi fyrir árið 2009 enda hefur ávallt við breytingarnar á lögunum frá því haustið 2008 verið lögð áhersla á að um tímabundnar aðhaldsaðgerðir væri að ræða sem yrðu endurskoðaðar um leið og aðstæður í ríkisfjármálum leyfðu.“Rúmlega tvöföldun greiðslna Þetta þýðir í reynd að gert er ráð fyrir að greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði muni nema um 13 milljörðum króna við lok kjörtímabilsins eða á árinu 2016 og hækki þannig frá yfirstandandi ári um tæpa 6 milljarða króna, sem er nær tvöföldun frá fjárlögum síðasta árs. Til viðbótar þessu er gert ráð fyrir að fæðingarorlofstímabilið lengist og verði tólf mánuðir í stað níu nú. Kostnaður við lengingu orlofstímans nemur ríflega 1 milljarði króna fyrir hvern mánuð. Því má áætla að heildarkostnaður kerfisins samkvæmt markmiðum og ákvæðum frumvarpsins verði um 16 milljarðar króna á ári. Þetta þýðir með öðrum orðum meira en 100% hækkun að raungildi þegar komið verður fram á árið 2016.Tökum skerðingar til baka Við töldum skynsamlegast að taka ákvörðun um það núna að stefna að hækkun hámarksgreiðslna fæðingarorlofs og afnema þær skerðingar sem innleiddar hafa verið í kerfinu á síðustu árum, eftir því sem fjárhagsaðstæður leyfðu. Í áliti okkar Unnar Brár sagði því: „Sú bitra staðreynd blasir við að karlar hafa hærri laun en konur. Á síðustu misserum, í tíð núverandi ríkisstjórnar, hefur þessi launamunur kynjanna aukist fremur en hitt, því miður. Þessi staðreynd – hversu mjög sem okkur mislíkar hún – mun því lita ákvörðun foreldra um töku fæðingarorlofsins. Það virðist því nokkuð augljóst að ef feður hafa ekki efni á að fara í fæðingarorlof vegna þess að hámarkið er svo lágt hafa þeir ekki heldur efni á því þótt fæðingarorlofið verði lengt og kannski jafnvel enn síður. Ef menn telja sig ekki hafa efni á báðum leiðum, en vilja á hinn bóginn bæði hækka hámarkið og lengja fæðingarorlofið, væri eðlilegra að hækka fyrst hámarkið og leyfa áhrifum þess að koma fram áður en ráðist verður í að lengja það. Sannarlega er það áhyggjuefni að þátttaka feðra í fæðingarorlofi hafi minnkað. Slík þróun er óæskileg fyrir börn og foreldra sem í hlut eiga og einnig út frá jafnréttissjónarmiðum. Mikilvægast til þess að auka aftur þátttöku feðra í fæðingarorlofi er að hámarkið verði því hækkað. Það á að vera forgangsverkefnið, sé til þess svigrúm í fjármálum ríkisins að verja meira fé til málaflokksins.“Verðum að forgangsraða Það er hvorki trúverðugt né ábyrgt, eftir að hafa staðið fyrir miklum niðurskurði á fjármunum til fæðingarorlofs, að vakna upp rétt fyrir kosningar og leggja til að taka allar skerðingar til baka og gott betur, með lengingu orlofsins. Sérstaklega þegar það er gert í trausti þess að aðrir eigi að sjá um framkvæmdina. Við verðum að forgangsraða og í þessu tilviki á forgangsröðunin að vera sú sem við settum fram í okkar áliti. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Einar K. Guðfinnsson Mest lesið Ýmislegt um rafmagnsbíla og reiðhjól Valur Elli Valsson Skoðun Þegar móðir mín kvaddi okkur fyrir einu ári síðan í dag Gísli Hvanndal Jakobsson Skoðun Samkennd samfélags Guðrún Karls Helgudóttir Skoðun Góðan daginn, ég ætla að fá … ENGLISH PLEASE! Ólafur Guðsteinn Kristjánsson Skoðun Þegar ómennskan vitnar í lög Bubbi Morthens Skoðun Ég skil ekki Ævar Þór Benediktsson Skoðun Hver er ég og hvert er ég að fara? Ellý Tómasdóttir Skoðun Hingað og ekki lengra Þorbjörg Þorvaldsdóttir Skoðun Hvað hefur Ísland gert? Katla Þorvaldsdóttir Skoðun Tölum um tilfinningar Amanda Ásdís Jóhannsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Akureyrarbær greiðir götu kvennaathvarfs á Akureyri eins og kostur er Ásthildur Sturludóttir skrifar Skoðun Þegar móðir mín kvaddi okkur fyrir einu ári síðan í dag Gísli Hvanndal Jakobsson skrifar Skoðun Íþróttahreyfingin og gerviverktaka Ástþór Jón Ragnheiðarson skrifar Skoðun Tölum um tilfinningar Amanda Ásdís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Óttinn við íslensku rafkrónuna Birna Guðný Björnsdóttir skrifar Skoðun Áskorun til Sjúkratrygginga Íslands – hugsum í lausnum Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Afnemum launamisrétti Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar Skoðun Hvað hefur Ísland gert? Katla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Viðhorf almennings og neytenda til sjálfbærnimála fyrirtækja og stofnana skiptir miklu máli Soffía Sigurgeirsdóttir,Trausti Haraldsson skrifar Skoðun Ýmislegt um rafmagnsbíla og reiðhjól Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Taugatýpísk forréttindi Mamiko Dís Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Hver er ég og hvert er ég að fara? Ellý Tómasdóttir skrifar Skoðun Þeir borga sem nota! Tómas Kristjánsson skrifar Skoðun Að hjálpa fólki að standa á eigin fótum Jón Þór Kristjánsson skrifar Skoðun Samkennd samfélags Guðrún Karls Helgudóttir skrifar Skoðun „Heimferða- og fylgdadeild“ Eiríkur Rögnvaldsson skrifar Skoðun Til varnar mennsku kúgarans Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar Skoðun Þegar ómennskan vitnar í lög Bubbi Morthens skrifar Skoðun Engum til sóma Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Góðan daginn, ég ætla að fá … ENGLISH PLEASE! Ólafur Guðsteinn Kristjánsson skrifar Skoðun Vernd náttúrunnar er ákvörðun Eva Dögg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hver er okkar ábyrgð á ofbeldi meðal barna Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Er verkalýðsbarátta á Íslandi að hnigna? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar Skoðun Má ekkert gera fyrir millistéttina? Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Milljarðarnir óteljandi og bókun 35 Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Háskólinn sveik stúdenta um góðar samgöngur Guðni Thorlacius,Katla Ólafsdóttir skrifar Skoðun „Bara“ kennari Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þjóðin slæst við elda: Hvar er Alþingi? Baldur Borgþórsson skrifar Skoðun Yazan Tamimi – spegill á sjálfsmynd þjóðar Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Hvað er niðurskurðarstefna? Halla Gunnarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Akureyrarbær greiðir götu kvennaathvarfs á Akureyri eins og kostur er Ásthildur Sturludóttir skrifar
Skoðun Viðhorf almennings og neytenda til sjálfbærnimála fyrirtækja og stofnana skiptir miklu máli Soffía Sigurgeirsdóttir,Trausti Haraldsson skrifar