Gildran Þorsteinn Pálsson skrifar 12. janúar 2013 06:00 Ísland er lokað í gildru gjaldeyrishafta. Þjóðarinnar bíður það hlutskipti að hlaupa hring eftir hring; ýmist við að hækka laun eða fella gengi. Hún mun mest nærast á froðu verðbólgunnar því að jarðvegur hennar er nú frjórri en hollari afurða. Helst má líkja aðstæðum þjóðarinnar við dýr í búri sem bíta í skottið hvert á öðru. Draumur flestra er þó samlíking við fjallgöngumenn á leið á tindinn. Hugur stjórnmálamanna er í ríkari mæli bundinn við skammtímalausnir en framtíðarsýn. Þar af leiðir að fyrirheitin í aðdraganda kosninganna minna fremur á misjafnlega stór búr en búnað til að ná á tindinn. Allar breytingar lúta síðan tveimur takmörkunum sem styðjast við réttlætiskennd. Annars vegar er almenn samstaða um að ekkert megi gera sem raski ríkjandi landbúnaðarkerfi. Það er helst að Samfylkingin kæri sig kollótta í þeim efnum. Hins vegar er ríkur meirihlutastuðningur við ráðagerðir um að vinda ofan af þeim þjóðhagslega ávinningi sem markaðslausnir í sjávarútvegi hafa skilað. Sagt er að réttlætið felist í fjölgun starfa og fiskiskipa og að taka arðinn í ríkissjóð til að kosta jarðgöng og styrki til atvinnufyrirtækja. Í staðinn verður almenningur að borga sveiflujöfnunina fyrir útgerðina í gegnum gengislækkanir. Sjálfstæðisflokkurinn stendur einn fyrir þann málstað að sjávarútvegurinn skili arði og geti ráðið við að jafna sveiflur upp á eigin spýtur án þess að fleyta þeim yfir á almenning. Þetta er minnihlutasjónarmið. En í sjálfu sér er ekki síður réttlátt að útgerðin haldi arðinum og borgi sjálf sveiflujöfnunina því það bætir kjör launafólks. Ísland er eftirbátur annarra Eigi þjóðin að halda á tindinn þarf að koma í veg fyrir að hún festist í gildru verðbólgunnar. Til að það takist þarf að láta sjávarútveginn jafna óhjákvæmilegar sveiflur fyrir eiginn reikning. Ella er stöðug mynt óhugsandi. Samhliða verður að sníða launabreytingum stakk í réttu hlutfalli við verðmætasköpun og framleiðni. Nærri lætur að fjórir fimmtu hlutar útflutnings landsmanna eigi rætur í nýtingu auðlinda. Henni eru hins vegar takmörk sett. Til að bæta kjörin þarf því að skapa nýja útflutningsstarfsemi á sviði þekkingar í framleiðslu og þjónustu. Það getur því aðeins gerst að Ísland sé samkeppnishæft. Til að svo megi verða þurfa sömu eða betri leikreglur að gilda hér en í viðskiptalöndunum. Ísland kemst því ekki hjá því að vera þátttakandi í alþjóðavæðingunni. Við verðum að horfast í augu við þá staðreynd að Ísland er eftirbátur annarra í framleiðni. Í nýlegri skýrslu McKinsey kom fram að framleiðni á vinnustund er nálægt því sem er í Grikklandi. Sjávarútvegurinn er eina atvinnugreinin sem náð hefur framleiðnistigi sem jafna má við það sem best gerist. Nú á að hverfa til baka og fórna þeim árangri fyrir félagsleg markmið. Af McKinsey-skýrslunni má einnig ráða að flytja þurfi þrettán þúsund störf úr þjónustugreinum í nýja atvinnustarfsemi til að ná framleiðni sem tryggir samkeppnishæfni landsins. Á næstu fimmtán árum þarf ný atvinnustarfsemi að auki að gera tvöföldun útflutningsverðmætanna mögulega. Á að ráðast á fjallið? Draumurinn um að ná á tindinn þýðir að ráðast verður á fjallið. En fjallganga er ekki fyrirhafnarlaus. Verkurinn er sá að í kosningum er ekki til vinsælda fallið að lofa nokkru því sem kostar fyrirhöfn eða erfiði. Meðan stjórnmálaflokkarnir koma sér hjá því að segja satt um fjallgönguna verður heldur engin trúverðug framtíðarsýn af tindinum. Eigi að takast að tvöfalda útflutning að talsverðum hluta með annars konar starfsemi en auðlindanýtingu þarf margháttaðar kerfisbreytingar. Lækkun skatta dugar ekki alla leið. Hér þarf gjaldmiðil sem er stöðugur og hlutgengur í viðskiptum. Krónan uppfyllir hvorugt skilyrðið og enginn hefur sýnt fram á að unnt sé að breyta því. Vel má vera að einhverjir telji að önnur pólitísk markmið séu mikilvægari en að tryggja sambærileg lífskjör við það sem best þekkist. Það er val sem sjálfsagt er að ræða. En þeir sem útiloka aðra kosti en óskert fullveldi í peningamálum geta ekki með trúverðugum hætti haldið fram málstað frjálsra óhindraðra viðskipta. Þeir sem velja takmörkun á viðskiptafrelsi geta ekki lofað bestu lífskjörum og norrænni velferð. Þeir sem ákveða félagslegar lausnir í sjávarútvegi í stað markaðslausna fórna sveiflujöfnunarmöguleikanum og geta því ekki boðað upptöku evru. Hver flokkur boðar nú ósamrýmanleg markmið. Við svo búið er enginn þeirra að bjóðast til að leiða þjóðina á tindinn. Verkefnið fram undan er því að finna meirihluta fyrir samrýmanlegum markmiðum. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Þorsteinn Pálsson Mest lesið Aldursfordómar, síðasta sort Bjarni Þór Sigurðsson Skoðun Svona hafði háskólinn fé af sjúkum manni á tveimur sólarhringum Ögmundur Jónasson Skoðun Upp með olnbogana! Eliza Reid Skoðun Ísland 2035: Gervigreind fyrir betra líf og styttri vinnuviku Sigvaldi Einarsson Skoðun Billjón dollara hringavitleysa? Bjarni Herrera Skoðun Að missa sjón þó augun virki Inga María Ólafsdóttir Skoðun Fáum Elon Musk lánaðan í viku Davíð Bergmann Skoðun Rænum frá börnum og flestum skítsama Björn Ólafsson Skoðun Áföll og gamlar tuggur Gunnhildur Sveinsdóttir Skoðun Lokum.is Alma Hafsteinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Áföll og gamlar tuggur Gunnhildur Sveinsdóttir skrifar Skoðun Billjón dollara hringavitleysa? Bjarni Herrera skrifar Skoðun Svona hafði háskólinn fé af sjúkum manni á tveimur sólarhringum Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Þetta er allt í hausnum á þér! Er þetta eðlilegt? Karen Ösp Friðriksdóttir,Arnrún María Magnúsdóttir skrifar Skoðun Aldursfordómar, síðasta sort Bjarni Þór Sigurðsson skrifar Skoðun Kjaramál eru annað tungumál Þorsteins Skúla Bryndís Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Lyf eru EKKI lausnin við svefnvanda Anna Birna Almarsdóttir skrifar Skoðun Fáum Elon Musk lánaðan í viku Davíð Bergmann skrifar Skoðun Á-stríðan og meðferðin Grétar Halldór Gunnarsson skrifar Skoðun Ingibjörg Gunnarsdóttir – Rektor sem skapar nemendum tækifæri Birna Þórisdóttir skrifar Skoðun Valkostir í varnarmálum Tryggvi Hjaltason skrifar Skoðun Magnús Karl er trúverðugur talsmaður vísinda á Íslandi Hannes Jónsson skrifar Skoðun Rænum frá börnum og flestum skítsama Björn Ólafsson skrifar Skoðun Með opinn faðminn í 75 ár Guðni Tómasson skrifar Skoðun Kolbrún lætur verkin tala og fær mitt atkvæði Vanda Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Ísland 2035: Gervigreind fyrir betra líf og styttri vinnuviku Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Lokum.is Alma Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Að komast frá mömmu og pabba Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Draumaskólinn – Skóli fyrir þig, ekki þú fyrir skólann Einar Mikael Sverrisson skrifar Skoðun Upp með olnbogana! Eliza Reid skrifar Skoðun Að missa sjón þó augun virki Inga María Ólafsdóttir skrifar Skoðun Flosi – sannur fyrirliði Hannes S. Jónsson skrifar Skoðun Því miður, atkvæði þitt fannst ekki Oddgeir Georgsson skrifar Skoðun Stigið fram af festu? Jón Steinar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Aðalvandamálið þegar þjónusta á íslensku er ekki í boði! Ólafur Guðsteinn Kristjánsson skrifar Skoðun Óður til Grænlands Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Hetjusögur af óþekktum manni – Ég kýs Þorstein Skúla sem formann VR Sólveig Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Skrifræðismartröð í Hæðargarði Dóra Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afstaða forsætisráðherra til varnar- og öryggismála mikið áhyggjuefni! Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Sérhagsmunir Viðskiptablaðsins Högni Elfar Gylfason skrifar Sjá meira
Skoðun Þetta er allt í hausnum á þér! Er þetta eðlilegt? Karen Ösp Friðriksdóttir,Arnrún María Magnúsdóttir skrifar
Skoðun Aðalvandamálið þegar þjónusta á íslensku er ekki í boði! Ólafur Guðsteinn Kristjánsson skrifar
Skoðun Hetjusögur af óþekktum manni – Ég kýs Þorstein Skúla sem formann VR Sólveig Guðjónsdóttir skrifar
Skoðun Afstaða forsætisráðherra til varnar- og öryggismála mikið áhyggjuefni! Ole Anton Bieltvedt skrifar