Bíó og sjónvarp

Schwarzenegger naglharður á nýju veggspjaldi

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Sabotage er frumsýnd í apríl.
Sabotage er frumsýnd í apríl.
Birt hefur verið nýtt veggspjald fyrir kvikmyndina Sabotage með sjálfum Arnold Schwarzenegger í aðalhlutverki.

Kvikmyndin er frumsýnd í apríl á næsta ári og segir frá sveit fíkniefnalögreglumanna sem verður fyrir barðinu á harðsvíruðum glæpamönnum, sem myrða meðlimi sveitarinnar einn af öðrum.

Það er David Ayer sem situr í leikstjórastólnum en hann leikstýrði síðast kvikmyndinni End of Watch. Skip Woods skrifar handritið en hann skrifaði handrit síðust Die Hard-myndar, sem lagðist misvel í gagnrýnendur.

Schwarzenegger fer með aðalhlutverk myndarinnar en í öðrum hlutverkum eru Sam Worthington, Olivia Williams og Terrence Howard.

Kynningarstiklu myndarinnar má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×