Körfubolti

Besta byrjun í sögu Miami Heat

LeBron James var í banastuði í nótt.
LeBron James var í banastuði í nótt. vísir/getty
Meistarar Miami Heat lenti í kröppum dansi gegn Atlanta í NBA-deildinni í nótt. Þeir unnu þó sigur að lokum eftir framlengdan leik.

Miami er því búið að vinna 21 leik og tapa aðeins 6 en það er besta byrjun í sögu félagsins.

LeBron James var í jólaskapi og skoraði 38 stig fyrir Miami. Það var þó Ray Allen sem tryggði Miami sigurinn af vítalínunni.

Ekkert verður leikið í NBA-deildinni í dag en á Jóladag verður spilað og þá verða tveir leikir í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Úrslit:

Charlotte-Milwaukee  111-110

Cleveland-Detroit  92-115

Orlando NY Knicks  98-103

Brooklyn-Indiana  86-103

Miami-Atlanta  121-119

Houston-Dallas  104-111

Memphis-Utah  104-94

San Antonio-Toronto  112-99

Denver-Golden State  81-89

Phoenix-LA Lakers  117-90

Sacramento-New Orleans  100-113

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×