Körfubolti

Nowitzki í þrettánda sæti yfir stigahæstu menn sögunnar

Dirk Nowitzki.
Dirk Nowitzki.
Þjóðverjinn Dirk Nowitzki hjá Dallas Mavericks heldur áfram að klífa stigann yfir stigahæstu menn í sögu NBA-deildarinnar. Hann hefur fært sig upp um fjögur sæti í vetur.

Hann er nú kominn upp í 13. sæti á listanum góða. Hann fór yfir Alex English í gær. Nowitzki hefur nú skorað 25.631 stig á ferlinum en English skoraði 25.613 á sínum 15 ára ferli.

"Annar frábær áfangi á ferlinum. Alex var ótrúlegur leikmaður og gaman að taka fram úr honum," sagði Nowitzki eftir leik.

Nowitzki er líka langstigahæsti leikmaður í sögu Dallas en hann sló það met árið 2008.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×