Körfubolti

Goðsögnin hefur engu gleymt

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
„Ég hef ekki tekið skot í nokkur ár. En þegar þú lærir að skjóta þá gleymir þú því aldrei,“ sagði Jerry West við hóp barna sem nutu leiðsagnar goðsagnarinnar á dögunum.

West er einn besti körfuboltamaður sem Bandaríkin hafa alið og var þekktur fyrir hittni sína. Viðurnefnið „Mr. Clutch“ festist við hann því hann var þekktur fyrir að hitta úr skotum á ögurstundu.

West er í dag ráðgjafi hjá Golden State Warriors en hann er orðinn 75 ára. Hann er þó enn jafnhittinn ef marka má myndband sem tekið var af honum kenna ungum börnum hvernig eigi að skjóta.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×