Innlent

Maðurinn lést af völdum skotsára

Fanney Birna Jónsdóttir og Kristján Hjálmarsson skrifar
Maðurinn sem handtekinn var vegna skotárásar í morgun lést  af skotsárum skömmu eftir komuna á bráðamóttöku Landspítalans. Maðurinn og lögreglan höfðu skiptst á skotum í nótt.

Þetta er í fyrsta skipti sem maður lætur lífið af völdum skotvopna í átökum við lögreglu.

Lögreglan var kölluð út að Hraunbæ um eitt leytið í nótt en maðurinn hóf að skjóta af byssu út um glugga. Þegar lögreglan kom á vettvang skaut maðurinn á hana. Skot gengu á milli lögreglunnar og mannsins fram eftir nóttu.

Maðurinn færði sig á milli herbergja og undir það síðasta lá hann uppi í rúmi, settist upp, skaut að lögreglu og lagðist svo aftur niður. Lögreglan skaut til að byrja með á annað herbergi en eftir að hafa fengið upplýsingar hjá nágranna skaut hún reyksprengju inn um gluggann þar sem maðurinn var.

Stuttu seinna yfirbugaði lögreglan manninn. Að sögn nágranna var maðurinn illa særður. Annað vitni sagði að lögreglan hefði skotið 70-80 skotum á íbúðina.


Tengdar fréttir

Íbúi við Hraunbæ: Heyrði um fimmtíu skot

„Það voru fjörutíu löggur fyrir utan. Ég hafði engar áhyggjur af þessu,“ segir íbúi við Hraunbæ, þar sem lögregla yfirbugaði byssumann í morgun.

Umsátursástand í Árbæ - skotið á lögreglumenn

Umsátursástand er í Árbæjarhverfi í Reykjavík þar sem maður virðist hafa skotið af byssu. Allt tiltækt lið lögreglu er á staðnum og hefur verið opnuð fjöldahjálparmiðstöð fyrir íbúa á svæðinu sem hafa verið látnir yfirgefa heimili sín. Maðurinn virðist staddur í blokk í Hraunbænum. Stóru svæði í hverfinu hefur verið lokað.

Myndband: Lögreglumenn skjóta á íbúð mannsins

Á meðfylgjandi myndskeiði má sjá sérsveitarmenn frá lögreglunni þegar aðgerðin í Árbæ stóð sem hæst. Meðal annars sést hvar lögreglumenn skjóta að því er virðist reyk- eða táragassprengjum inn í íbúð mannsins sem hafði lokað sig af í íbúð sinni.

Byssumaðurinn á Landspítalanum

Maðurinn sem var yfirbugaður í Árbænum í morgun liggur nú á Landspítalanum. Upplýsingar um líðan hans fást ekki að svo stöddu, að sögn vakthafandi læknis. Hann staðfestir þó í samtali við fréttastofu að hann sé á spítalanum. Nágrannar segja líklegt að maðurinn sé særður, þar sem blóð sjáist á vettvangi.

Búið að yfirbuga manninn

Búið er að yfirbuga manninn sem skaut af byssu við Árbæ í morgun og er búið að aflétta lokun sem var í stórum hluta hverfisins. Lögreglan tilkynnti íbúum sem höfðu verið fluttir í Árbæjarkirkju þetta nú fyrir skömmu. Ekki er vitað hvort maðurinn sé særður.

Árbæjarkirkja veitti 10 manns áfallahjálp

"Það er óhætt að segja að þetta hafi verið óvenjulegt morgunverk og óskemmtilegt,“ segir sóknarprestur í Árbæjarkirkju sem tók á móti íbúum í stigagangi byssumannsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×