Fótbolti

Skúli Jón æfir með Åtvidaberg

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / GEtty Images
Líkur eru á því að Skúli Jón Friðgeirsson sé á leið frá sænska úrvalsdeildarfélaginu Elfsborg á næstunni.

Skúli Jón er samningsbundinn Elfsborg til 2015 en fékk ekkert að spila með liðinu í deildinni í sumar. Hann æfir nú með Åtvidaberg sem einnig spilar í úrvalsdeildinni.

„Ég held að þetta sé leikmaður sem við trúum að geti meira en hann hefur fengið tækifæri til að sýna í Elfsborg,“ sagði Peter Swärdh, þjálfari Åtvidaberg, við sænska fjölmiðla.

Skúli Jón var að glíma við meiðsli á nýliðnu tímabili en segir nauðsynlegt að hann fái að spila á nýjan leik. „Þetta var mjög leiðinlegt tímabil. Ég vil endurheimta ánægjuna og ef það þýðir að ég verði að skipta um félag þá verður það að vera þannig,“ sagði Skúli Jón.

Swärdh segir að félagið sé að leita að nýjum miðverði og að Skúli Jón hafi fengið góð meðmæli, bæði frá Elfsborg og Íslandi þar sem hann spilaði með KR-ingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×