Bíó og sjónvarp

Walter hefði betur hlustað á Saul – Nýir þættir um lögmanninn í framleiðslu

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Þættirnir Better Call Saul munu fjalla um lögmanninn Saul Goodman sem áhorfendur Breaking Bad þekkja vel.
Þættirnir Better Call Saul munu fjalla um lögmanninn Saul Goodman sem áhorfendur Breaking Bad þekkja vel. mynd/365
Framleiðsla er hafin á þáttunum „Better Call Saul“ sem er hliðarsaga við þættina Breaking Bad. Þættirnir Breaking Bad fjalla um Water White, efnafræðikennarann sem leiðist út á glæpabrautina í kjölfar þess að hann greinist með krabbamein. Þetta kemur meðal annars fram á Mashable.com.

Breaking Bad þættirnir hafa notið gífurlegra vinsælda og verið tilnefndir til og hlotið fjölda verðlauna.

Þættirnir Better Call Saul munu fjalla um lögmanninn Saul Goodman sem áhorfendur Breaking Bad þekkja vel. Einn framleiðanda þáttanna um Saul, er Peter Gould sem skapaði persónuna Saul Goodman.

Í viðtali hjá Yahoo TV sagði Gould um Saul Goodman: „Hann klæðir sig fáránlega, hann setur upp auglýsingaskilti þar sem hann auglýsir sig með stórundarlegum auglýsingum en hann er góður lögmaður. Þegar hlustað er vandlega á ráð Saul til Walter má heyra að þau eru í raun mjög góð. Ef Walter hefði hlustað aðeins meira á Saul held ég að þættirnir hefðu farið á allt annan veg en að sama skapi hefðu þeir ekki verið jafn spennandi.“

Vince Gilligan, höfundur Breaking Bad, hlakkar til að sjá þættina um Saul og hefur mikla trúa á þeim. „Ég elska hugmyndina um lögmanninn sem gerir allt til þess að forðast að mæta í dómsalinn,“ segir Gilligan.

Better Call Saul munu fjalla um líf og störf Saul Goodman áður en hann kemst í kynni við þá félaga Walter og Jessie Pinkman.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×