Íslenski boltinn

KR búið að taka tilboði í Hannes Þór

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mynd/Vilhelm
Flest bendir til þess að Hannes Þór Halldórsson verði orðinn leikmaður Sandnes Ulf í Noregi innan tíðar. Mbl.is greinir frá þessu.

KR hefur tekið tilboði norska liðsins í landsliðsmarkvörðinn sem hefur í lengri tíma verið eini leikmaður í byrjunarliði landsliðsins sem ekki spilar erlendis. Takist Hannesi að semja um kaup og kjör við félagið er ljóst að Ísland hefur eignast nýjan atvinnumann.

Hannes Þór, sem æfði með norska liðinu fyrir leiki íslenska landsliðsins gegn Króatíu, virðist hafa heillað forráðamenn norska liðsins. Þannig átti hann upphaflega bara að fá tækifæri til að halda sér í leikformi en eitthvað virðist leikstjórinn hafa gert vel á æfingunum.

Steinþór Freyr Þorsteinsson lék lengi með Sandnes Ulf en er nú orðinn liðsmaður Viking. Þá leikur Steven Lennon, fyrrum leikmaður Fram, með liðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×