Bíó og sjónvarp

Heimildamynd um Reðursafnið í dreifingu í Ameríku

Samúel Karl Ólason skrifar
Sigurður Hjartarson stofnandi Reðursafnsins á Húsavík.
Sigurður Hjartarson stofnandi Reðursafnsins á Húsavík. Mynd/Örlygur Hnefill
Dreifingarfyrirtækið Drafthouse films hefur keypt dreifingarréttinn á heimildamyndinni „The Final Member“ í Norður Ameríku.

Myndin fjallar um Sigurð Hjartarson, stofnanda Reðursafnsins á Húsavík, og leit hans að reðri af manni í safnið. Tveir menn stigu fram til að bjóða safninu reður sína, annar aldraður íslenskur maður og hinn sérvitur Bandaríkjamaður.

Myndin verður gefin út í Ameríku í apríl á næsta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×