Fótbolti

Valencia tryggði sér efsta sætið

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Valencia gerði góða ferð til Wales í kvöld og vann þar 1-0 sigur á Swansea í Evrópudeild UEFA. Þar með hafa Spánverjarnir tryggt sér efsta sæti A-riðils.

Valencia er þar með einnig komið áfram í 16-liða úrslit keppninnar en liðið er með tólf stig eftir fimm leiki. Swansea er í öðru sæti með átta stig og þarf jafntefli í lokaleiknum gegn St. Gallen til að gulltryggja sæti sitt í 16-liða úrslitunum.

Daniel Parejo skoraði eina mark leiksins á 20. mínútu. Varamaðurinn Alvaro Vasquez var nálægt því að jafna metin fyrir heimamenn undir lokin en skot hans var varið á línu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×