Enski boltinn

Liverpool ræðir við Barcelona um Montoya

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Martin Montoya.
Martin Montoya. Nordicphotos/Getty
Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool á í viðræðum við Barcelona um kaup á spænska varnarmanninum Martín Montoya. Guardian greinir frá.

Liðsmaður 21 árs landsliðs Spánverja, sem getur spilað í báðum bakvarðarstöðunum, verður samningslaus í lok leiktíðar. Montoya hefur fengið fá tækifæri hjá Spánarmeisturunum en þó ekki gefið út að hann vilji leita annað.

Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, vill styrkja bakvarðarstöðuna hjá félaginu þrátt fyrir að hafa fengið Aly Cissokho að láni í ágúst og úrvalsframmistöðu Jon Flanagan í vinstri bakverðinum gegn Everton um liðna helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×