Körfubolti

NBA: Flautukarfa Green tryggði Celtics sigur á Miami | Indiana óstöðvandi

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Jeff Green fagnar hér sigurklörfu sinni.
Jeff Green fagnar hér sigurklörfu sinni. Mynd/NordicPhotos/Getty
Jeff Green leiddi Boston Celtics til þriðja sigursins í röð þegar Boston lagði Miami Heat. Þrátt fyrir góðan leik frá LeBron James sem daðraði við þrefalda tvennu í leiknum með 25 stig, 10 stoðsendingar og 8 fráköst voru það Celtics menn sem sigruðu á endanum.

Það var heldur betur drama á lokasekúndum leiksins í Miami þegar heimamenn leiddu með fjórum stigum þegar þrjár sekúndur voru eftir. Jeff Green skoraði að lokum sigurkörfuna með erfiðum þrist úr horninu þegar leiktíminn rann út.

Indiana Pacers unnu enn einn leikinn í nótt þegar þeir sigruðu Brooklyn Nets í Brooklyn. Sigurinn í kvöld var sá sjöundi í röð og er Indiana áfram eina taplausa liðið í deildinni. Paul George átti enn einn stórleikinn í liði Indiana í sigrinum en hann var með 24 stig. Þá var Roy Hibbert sterkur undir körfunni fyrir Pacers með 15 stig og 11 fráköst.

Toronto Raptors áttu ekki í vandræðum með slakt Utah Jazz lið á heimavelli, Raptors tóku 30 stiga forskot inn í fjórða leikhluta og var sigur þeirra ákaflega öruggur.

Kyrie Irving átti enn einn stórleikinn þegar Cleveland Cavaliers sigruðu Philadelphia 76ers á heimavelli eftir tvíframlengdan leik. Kyrie skoraði 39 stig í leiknum, þar á meðal sigurkörfuna á lokasekúndum leiksins.

Houston Rockets töpuðu öðrum heimaleik sínum í röð þegar þeir mættu Los Angeles Clippers. Stjörnubakvörður Houston, James Harden var að glíma við meiðsli og átti slakan leik í liði Houston. Chris Paul var öflugur í liði Clippers með 14 stig og 13 stoðsendingar.



Öll úrslitin í NBA-deildinni í nótt:

Toronto Raptors - Utah Jazz 115-91

Atlanta Hawks - Orlando Magic 104-94

Brooklyn Nets - Indiana Pacers 91-96

Cleveland Cavaliers - Philadelphia 76ers 127-125 (tvöföld framlenging)

Miami Heat - Boston Celtics 110-111

Houston Rockets - Los Angeles Clippers 94-107

Memphis Grizzlies - Golden State Warriors 108-90

Milwaukee Bucks - Dallas Mavericks 83-91

Sacramento Kings - Portland Trailblazers 96-85.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×