Bíó og sjónvarp

Vilja Tom Hardy í fimmtu myndina um Tortímandann

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Breski leikarinn Tom Hardy er sagður efstur á óskalista framleiðenda Tortímandans.
Breski leikarinn Tom Hardy er sagður efstur á óskalista framleiðenda Tortímandans.
Undirbúningur fimmtu myndarinnar í hinni sívinsælu seríu um Tortímandann stendur yfir og spá erlendir miðlar í spilin, og þá helst í það hver muni fara með hlutverk uppreisnarmannsins Johns Connor.

Yahoo Movies greinir frá því að breski leikarinn Tom Hardy sé efstur á óskalista framleiðendanna, en einnig eru þeir Taylor Kitsch og Nicholas Hoult nefndir til sögunnar. Þá eru Garret Hedlund og Boyd Holbrook orðaðir við hlutverk Kyle Reese, föður Connors.

Fimmta myndin er sögð gerast í nútímanum og hefur Arnold Schwarzenegger tilkynnt um þátttöku sína, en verkefni hans í myndinni verður að bjarga lífi Söruh Connor, móður Johns, þegar hún var ung, en eins og vanalega má eiga von á heilmiklu tímaflakki í myndinni. Þær Emilia Clarke, Brie Larson og Margot Robbie eru sagðar koma til greina í hlutverk hennar, en fyrirhugað er að frumsýna myndina árið 2015.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×