Þrjár viðstöðulausar troðslur á 32 sekúndum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. nóvember 2013 08:32 Chris Paul og Blake Griffin. Mynd/NordicPhotos/Getty
Chris Paul og Blake Griffin voru í miklum ham í 126-115 sigri Los Angeles Clippers á Golden State Warriors í NBA-deildinni í körfubolta í nótt en það var einkum ótrúlegur 32 sekúndna kafli sem stóð upp úr í leiknum. Chris Paul skoraði 42 stig, gaf 15 stoðsendingar og stal 6 boltum í leiknum og sýning Paul náði hápunkti sínum í þriðja leikhluta þegar hann henti boltanum upp þrisvar sinnum á 32 sekúndum og Blake Griffin tróð boltanum viðstöðulaust í körfuna í öll þrjú skiptin. Chris Paul stal boltanum í tvígang á þessum leikkafla og alltaf var Blake Griffin mættur í hraðaupphlaupið til þess að troða með tilþrifum í körfuna. Blake Griffin var með 23 stig og 10 fráköst í leiknum. Það er hægt að sjá þessa mögnuðu sýningu þeirra Chris Paul og Blake Griffin hér fyrir neðan. Kannski ekkert skrýtið að Mark Jackson, þjálfari Golden State Warriors, vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið, þegar myndavélin fór á hann við lok sýningar.
NBA Mest lesið Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Enski boltinn Keane segir Arteta að taka lyfin sín Enski boltinn Stig tekin af liði Ásdísar og félagið gæti hætt Fótbolti BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Enski boltinn Viðar Ari fjórbrotinn Fótbolti Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Sjá meira