Körfubolti

Heimsfriður tók lestina

Stefán Árni Pálsson skrifar
Metta World Peace í umræddum leik.
Metta World Peace í umræddum leik. nordicphotos/getty
Metta World Peace, leikmaður New York Knicks í NBA-deildinni, ferðaðist með neðanjarðarlest á sinn fyrsta heimaleik í deildinni með Knicks en leikmaðurinn gekk í raðir félagsins fyrir tímabilið.

Blaðamaðurinn Jim Baumbach ferðaðist með leikmanninum og tók nokkrar skemmtilegar myndir á leiðinni.

Metta World Peace er gríðarlega skrautlegur karakter en hann hét til að mynda áður Ron Artest áður en hann breyti því.

New York Knicks vann Milwaukee Bucks, 90-83, í umræddum leik sem fram fór í Madison Square Garden á miðvikudagskvöld.

Hér að neðan má sjá myndir frá ferðinni.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×