Körfubolti

Leikmenn Nets ekki ánægðir með sjálfa sig

Garnett og Paul Pierce eru enn að venjast nýju liði.
Garnett og Paul Pierce eru enn að venjast nýju liði.
Tímabilið hefur ekki alveg farið nógu vel af stað hjá Brooklyn Nets í NBA-deildinni og leikmenn liðsins eru ekki ánægðir með sig.

Nets skellti meisturum Miami en tapaði síðan fyrir Orlando tveim dögum síðar.

"Sigurinn gegn Miami skiptir engu máli ef við töpum síðan fyrir lakari liðum. Ef við ætlum að vera eitt besta lið deildarinnar þá verðum við að gera miklu betur," sagði Deron Williams pirraður.

Kevin Garnett kom til liðsins frá Boston í sumar. Hann hefur ekki alveg fundið fjölina sína og ekki enn náð því að skora yfir tíu stig í leik.

"Ég verð að stíga upp og spila betur. Nýta mínar mínútur betur. Ég hef aðeins verið að halda aftur af mér og reynt að vera límið í liðinu. Ég þarf að vera ákveðnari," sagði Garnett.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×