Bíó og sjónvarp

Kvikmynd Wes Anderson opnar kvikmyndahátíðina í Berlín

Wes Anderson
Wes Anderson AFP/NordicPhotos
Nýja kvikmyndin úr smiðju leikstjórans Wes Anderson, The Grand Budapest Hotel, kemur til með að opna kvikmyndahátiðina í Berlín 2014.

Aðstandendur hátíðarinnar sögðu í dag að myndin yrði heimsfrumsýnd á kvikmyndahátíðinni þann sjötta febrúar á næsta ári. 

Meðal leikara í myndinni eru Ralph Fiennes, Adrien Brody, Jude Law og Edward Norton.

Hátíðin í Berlín er fyrsta stóra hátíðin í Evrópu á næsta ári. Forstöðumaður hátíðarinnar í Berlín, Dieter Kosslick, sagði að myndin, sem er gamanmynd, myndi koma áhorfendum í gírinn fyrir það sem koma skal.

The Grand Budapest Hotel er um starfsmann í móttöku á evrópsku hóteli sem leikinn verður af Fiennes. Í myndinni er ómetanlegu listaverki stolið og það síðan endurheimt.

Kvikmyndahátíðin í Berlín byrjar þann sjötta febrúar og stendur til sextánda sama mánaðar.

Wes Anderson hefur áður leikstýrt myndum á borð við The Royal Tenenbaums, Moonrise Kingdom og The Fantastic Mr. Fox.

Hér að neðan er hægt að sjá stiklu úr The Grand Budapest Hotel:








Fleiri fréttir

Sjá meira


×